Þrjátíu og sjö nýstúdentar brautskráðust frá Menntaskólanum að Laugarvatni nýliðinn laugardag, 22. maí.  200 manns voru á útskriftinni, nýstúdentar og fjölskyldur þeirra, starfsmenn skólans sem og nokkrir aðrir sem komu að hátíðardagskránni svo og einnig tæknimenn frá Sonik þar sem athöfninni var streymt. Salnum var hólfaskipt og allar sóttvarnareglur viðhafðar.

Bestum heildarárangri nýstúdenta náði Margrét María Ágústsdóttir frá Selfossi en hún var með aðaleinkunnina 9,39 sem er vegið meðaltal allra áfanga sem hún tók við skólann á þriggja ára námsferli sínum. Semi dux nýstúdenta var Kristján Bjarni Rossel Indriðason frá Ysta-Koti í Rangárþingi eystra með aðaleinkunnina 9,29.  Hlutu þau, sem og fjöldi annarra nýstúdenta, viðurkenningar kennara og fagstjóra skólans fyrir afburðaárangur í hinum ýmsu greinum.  Nýstúdentar sem setið höfðu í stjórn nemendafélagsins Mímis hlutu og viðurkenningu fyrir störf sín.  Eins hlaut Kristján Bjarni fráfarandi stallari sérstaka stallaraviðurkenningu og einnig Raungreinaverðlaun HR. Hekla Steinarsdóttir frá Hellu, nýstúdent af Félags- og hugvísindabraut, hlaut sérstaka viðurkenningu skólameistara fyrir óeigingjörn störf í þágu skólans og nemendafélagsins. Sindri Bernholt frá Hveragerði, nýstúdent af Náttúruvísindabraut, hlaut Menntaverðlaun HÍ, Almar Máni Þorsteinsson frá Hellu, nýstúdent af Náttúruvísindabraut, hlaut viðurkenningu Stærðfræðafélags Íslands og viðurkenningu Landlæknisembættisins fyrir árangur í heilsuáföngum svo og hlaut Kolbrá Hekla Guðjónsdóttir frá Selalæk í Rangárþingi ytra viðurkenningu Efnafræðifélagsins.

Jóna Katrín Hilmarsdóttir aðstoðarskólameistari starfaði sem skólameistari lungann úr vetrinum í leyfi Halldórs Páls Halldórssonar skólameistara og flutti hún ræðu skólameistara. Í máli hennar kom m.a. fram:  „Á erfiðum tímum kristallast tilgangur þess sem við sinnum í hversdeginum. Við förum í vinnu og skóla, við sinnum börnum og búi. Hversdagurinn er nefnilega dýrmætari en við gerum okkur oft grein fyrir; það gleymist í amstri dagsins. Að lifa á friðartímum í friðsömu landi sem tryggir börnunum okkar aðgengi að menntun og öllum þeim tækifærum sem hugur þeirra stefnir til er mikið dýrmæti.“

Í ræðu fulltrúa nýstúdenta, Kristjáns Bjarna, kom m.a. fram:  „Hérna í þessum skóla höfum við eignast vini sem við munum sennilega halda í allt til æviloka. Vinirnir muna nýta tækifærin til að hittast og spjalla um allt það sem skiptir minna máli eins og pólitík og börnin en svo mun samtalið auðvitað leiða til baka á gömlu góðu tímana þar sem við gerðum svo marga mismunandi og misgáfulega hluti.“

Áslaug Harðardóttir áfangastjóri og staðgengill skólameistara flutti annál skólaársins. Þar kom m.a. fram: „Skólastarfið í vetur litaðist af þeim heimsfaraldi sem nú geisar. Á haustönninni fóru nám og kennsla að mestu fram í fjarvinnslu en nú á vorönn gátu nemendur sem betur fer stundað nám sitt hér á Laugarvatni að langmestu leyti. Ástandið hefur oft reynt á, en það hefur líka þjálfað okkur öll að hugsa í lausnum sem aldrei fyrr.“

Fulltrúi afmælisárganga, Elfa Birkisdóttir tuttugu ára júbilant, flutti ræðu fyrir þeirra hönd á fertugsafmælisdegi sínum og sagði meðal annars þegar hún rifjaði upp ár sín í ML: „Hér í Menntaskólanum að Laugarvatni urðu til kjöraðstæður fyrir okkur sem hóp að skapa saman samfélag. Í samfélögum þar sem margir aðilar koma saman og ólíkir hagsmunir blandast saman er mikilvægt að vita hver kjarninn er. Hvað skiptir okkur mestu máli sem heild? Hvernig getum við átt samskipti þar sem allir ganga í burtu sem sigurvegarar, í þeirri merkingu að sigurinn felst í gæfuríkara samfélagi öllum til handa. Samfélagi þar sem ríkir samhygð og skilningur. Samfélagi sem samþykkir mistök og er í leiðinni þess fullviss um að geta gert betur, saman. Það er ótrúlega mikilvægt að vita að enginn er eyland og enginn er merkilegri en annar og ég endurtek, enginn er eyland og enginn er merkilegri en annar.“

Nemendur færðu Sigurði Péturssyni, sögukennara og Veru Sólveigu Ólafsdóttur, efnafræðikennara, gjafir með þökkum fyrir auðsýndan stuðning við nemendur við námið. Að auki voru Jónu Katrínu, aðstoðarskólameistara, færð blóm og silfurhringur sem þakkarvottur fyrir stuðning við nemendur í gegnum Covid-veturinn 2020-2021.

Skólanum bárust gjafir frá júbilöntum og sendi skólameistari innilegar þakkir til útskrifaðra nemenda sem ekki fengu tækifæri til að heimsækja skólann í góðum vinafagnaði eins og venja hefur verið. Að auki var skólanum afhent á skólaslitum verk eftir Kristjönu Sigmundsdóttur, útskriftarnemanda, sem gaf skólanum lokaverkefnið sitt við skólann. Um er að ræða merki skólans saumað með refilsaumi í ullarefni og með íslensku ullargarni. Eru henni og færðar bestu þakkir fyrir.

Þeir nýstúdentar sem eru í kór ML, eða 30 af 37, sungu tvö lög undir stjórn Eyrúnar Jónasdóttur kórstjóra skólans en í Kór ML voru nýliðinn vetur 125 nemendur eða rúmlega 88% nemenda skólans. Það má teljast einstakt ef ekki heimsmet!

Halldór Páll skólameistari ávarpaði nýstúdenta í lok hátíðardagskrár og sagði meðal annars:  „Ræktið vináttu ykkar, hún er til lífsstíðar.  Það er lífsstíll að vera ML-ingur.  Leitist við að hittast sem oftast í þeirri veröld sem er utan holtsins okkar, en því er ekki að neita að á stundum leitar að manni sú hugsun að ekkert sé utan dalsins fagra. Hér er ólýsanlega fögur veröld í alheimi, í eiginlegri sem huglægri merkingu. Hér er lífið !“

Veitt var úr styrktarsjóði Kristins Kristmundssonar og Rannveigar Pálsdóttur, fyrrverandi skólameistarahjóna, að Rannveigu (Bubbu) viðstaddri, hið fjórtánda sinni þeim “nýstúdentum sem sýnt hafa frábæran dugnað, hæfileika og ástundun í námi” eins og stendur í stofnskrá að skuli gera.  Styrki hlutu:

Margrét María Ágústsdóttir, nýstúdent af Félags- og hugvísindabraut.

Kristján Bjarni Rossel Indriðason, nýstúdent af Náttúruvísindabraut.

Jóna Guðlaug Guðnadóttir frá Drangshlíðardal í Rangárþingi eystra, nýstúdent af Náttúruvísindabraut.

Sindri Bernholt frá Hveragerði, nýstúdent af Náttúruvísindabraut.

Dux scholae veturinn 2020-2021 voru tveir og er þar horft til árangurs allra nemenda skólans yfir veturinn. Það voru þau Sindri Bernholt og Guðný Salvör Hannesdóttir (Gísella), nemandi í 2F, en hún er frá Arnkötlustöðum í Rangárþingi ytra. Voru þau bæði með aðaleinkunnina 9,8 sem er vegið meðaltal áfanga vetrarins með einum aukastaf.  Semi dux scholae nýliðins vetrar voru einnig tveir, áðurnefnd Margrét María og Kristján Bjarni með aðaleinkunn vetrarins 9,6.

Á útskriftinni var Þórdísi Pálmadóttur þökkuð vel unnin störf, en í hún hefur starfað sem skólaritari og fulltrúi í um áratug og að auki ritað á stúdentaskírteini og í viðurkenningarbækur í 33 ár.

Skólameistari

Myndir: Ívar Sæland ljósmyndari.

r eru komnar fleiri myndir frá útskrift