Kynjafræði er skyldufag fyrir alla nemendur á fyrsta ári í ML, bæði á náttúruvísindabraut og félags- og hugvísindabraut. Hluti af áfanganum í haust var ferð á Málþing kynjafræðinema sem haldið var í hátíðarsal Háskóla Íslands.  

Fyrirlesararnir að þessu sinni voru: 

  • Gyða Margrét Pétursdóttir – kynning á námsbraut í kynjafræði í HÍ 
  • Bjarni Snæbjörnsson – bakslag gegn hinsegin fólki 
  • Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta – Onlyfans og kynferðisofbeldi 
  • Þórdís Elva Þorvaldsdóttir – fjallar um stafrænt ofbeldi 
  • Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir – kynferðiseinelti í íslenskri skólamenningu 

Nú styttist í næsta málþing, sem er hluti af dagskránni á Jafnréttisdögum Háskólanna. Því verður streymt á Facebook og við hvetjum alla til að fylgjast með:  

Kynlífsmenning, rasismi og kynjafræðin: Málþing kynjafræðinema í framhaldsskólum | Facebook 

Enn fremur vekjum við athygli á þessum viðburði í dag, sem einnig verður í streymi: Ungmenni og kynferðislegt ofbeldi: Forvarnir og viðbrögð | Facebook

Freyja 

jafnréttisfulltrúi ML