Kór Menntaskólans að Laugarvatni heldur sína árlegu vortónleika í Skálholtskirkju á sumardaginn fyrsta, 23. apríl.
Í boði eru tvennir tónleikar, fyrri kl. 14:00 og seinni kl. 16:00.
Sungin verða fjölbreytt og skemmtileg lög sem koma öllum í sannkallað sumarskap. Undirleik annast Stefán Þorleifsson, stjórnandi kórsins.
Miðaverð er 4000 kr. í forsölu og 4500 kr. við hurð, frítt fyrir 12 ára og yngri!
Miðasala fer fram í gegnum kórfélaga og er millifært beint til þeirra. Þeir sem ekki eiga aðstandanda í kórnum geta pantað miða hjá Emil Rafn (erk.07@ml.is) eða Þóreyju Kristínu (tkr.07@ml.is).
Við hlökkum til að sjá ykkur og syngja með ykkur inn í sumarið!

