Ævintýraferð kórs ML til Svíþjóðar

Kór Menntaskólans að Laugarvatni fór nýverið í ógleymanlegt og vel heppnað ferðalag til Stokkhólms. Þar hélt kórinn tónleika, tók þátt í hópefli, skoðaði borgina, fór á söfn og naut samverustunda. Undanfarin ár hefur verið farið til Bolzano á Ítalíu en að þessu sinni var ákveðið að velja styttra ferðalag og varð Svíþjóð fyrir valinu. Í ferðina fóru 110 nemendur ásamt fimm starfsmönnum, Stefáni Þorleifssyni kórstjóra, Margréti Elínu Ólafsdóttur verkefnastjóra, Erlu Þorsteinsdóttur húsfreyju, Pálma Hilmarssyni húsbónda og Rúnari Gunnarssyni vistarverði.

Stuttu fyrir brottför var ferðalöngum alls ekki rótt þegar appelsínugul veðurviðvörun var gefin út. Margir fylgdust stressaðir með veðurspám sem skánaði sem betur fer og eftir stóð tilhlökkun og eftirvænting. Ferðin gekk samkvæmt áætlun og komust þreyttir en alsælir ferðalangar á gististað í miðbæ Stokkhólms. Þar var aðstaðan góð og samverustundir í morgunmat og á kvöldin einkenndust af spjalli, söng, hlátri, leikjum og spilum. Strax á ferðadegi hófst lífleg dagskrá. Hópurinn fór í hópmyndatöku og síðan var gengið um Gamla Stan þar sem þröngar götur og litrík hús sköpuðu ævintýralega stemningu.

Næsta dag var farið í kastalaferð á eyju við bæinn Vaxholm. Hópurinn fékk frábærar móttökur sem hófst á hádegismat, ekta sænskar kjötbollur með kartöflumús, súrum gúrkum og týtuberjum áður en haldið var upp í drungalegan hluta kastalans. Þar var nemendum skipt í hópa og tóku þeir þátt í þrautum. Heyra mátti hlátur, hvatningaróp og jafnvel sigursöngva þegar hóparnir unnu saman að verkefnum. Eftir keppni safnaðist hópurinn saman úti í góða veðrinu, söng á meðan stigin voru talin og að lokum voru sigurvegarar krýndir. Eftir vel heppnaða kastalaferð var haldið til baka og endaði dagurinn á kóræfingu á Sergelstorgi sem vakti athygli vegfarenda.

Næstu tveir dagar voru viðburðarríkir. Heimsókn í tæknisafnið og ABBA safnið sem sló heldur betur í gegn. Þar sungu nemendur óvænt lagið SOS fyrir safngesti og sköpuðu skemmtilega stemningu. Auk þess fræddust þeir um mikilfenglega tónlistarsögu ABBA og prófuðu meðal annars karókí, búninga og að standa á sviði með hljómsveitinni. Einnig var farið í ratleik um borgina þar sem skoðuð voru helstu kennileiti hennar. Nemendur fengu jafnframt tækifæri til að kanna borgina upp á eigin spýtur og var afar vinsælt að kíkja aðeins í búðir og skella sér á McDonalds!

Hápunktur ferðarinnar voru tónleikarnir á síðasta degi í Matteuskirkju. Þar flutti kórinn fjölbreytt lög af mikilli innlifun sem skapaði einstaka stemningu. Undirrituð og annað starfsfólk geta vottað fyrir því að tónleikarnir voru einstaklega fallegir, gæsahúðin segir sitt. Enda eru tónleikarnir afrakstur mikillar vinnu og undirbúnings. Stefán Þorleifsson tók við kórnum í haust og má með sanni segja að samstarfið hafi gengið vel þrátt fyrir að honum hafi stundum óað við fjöldanum, enda stærsti kór landsins!

Eftir afar viðburðaríka og sólríka daga var komið að því að pakka niður og halda aftur heim á leið. Ferðin gaf nemendum dýrmætt tækifæri til að efla vináttu, sjálfstæði, samvinnu og kynnast starfsfólki enn betur. Slík reynsla er ómetanleg og mun lifa lengi í minningum allra. Við sem fylgdum nemendunum erum afar stolt af þessum glæsilega hópi og minnum á hversu frábæra fulltrúa Menntaskólinn að Laugarvatni á.

Að lokum viljum við þakka öllum sem hafa stutt við nemendur og kórstarfið, án ykkar væri þetta ógerlegt. Sérstakar þakkir fær ferðaskrifstofan Kilroy  fyrir aðstoðað við skipulag ferðarinnar.

Hér má sjá myndir úr ferðalaginu.

Sjáumst hress og kát á sumardaginn fyrsta á vortónleikum í Skálholtskirkju kl. 14 eða 16!

Margrét Elín Ólafsdóttir

Verkefnastjóri kórs