Föstudaginn 8. maí buðu útskriftarnemar aðstandendum og öðrum áhugasömum að koma á opið hús hér í ML og sjá lokaverkefnin þeirra sem þau hafa unnið hörðum höndum að alla önnina. Verkefnin þeirra voru fjölbreytt að vana og má þar nefna tónlistargerð, skúlptúrgerð, bókagerð, fatahönnun, bílaviðgerðir og bassasmíði. Við látum myndir af stoltum nemendum með verkin sín fylgja hér með í fréttinni. 

Karen Dögg Bryndísardóttir, I. Blaka Hreggviðsdóttir og Heiða Gehringer, Leiðbeinendur lokaverkefnisins