Dagana 4.-8. Október fóru nemendur úr Parísaráfanga í náms- og menningarferð til Parísar. Á þessum stutta tíma náðu nemendur að kynnast fjölbreytileika þessarar sögufrægu menningarborgar.

Nemendum gafst kostur á að fara með rútu beint frá Laugarvatni á Keflavík klukkan 3 aðfaranótt sunnudagsins 4. okt og því voru það fremur svefnvana ferðalangar sem stilltu sér upp við listaverk Erró í flugstöðinni á leið út. Þetta var okkar fyrsta menningarstopp því íslenski myndlistamaðurinn Erró hefur búið í París í áratugi og er mjög þekktur listamaður þar í landi.

Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir á hostelinu The People sem var vel staðsett í Mýrinni, gengum við yfir á Bastillutorgið til að borða hinn fræga Le Big Mac! Að því loknu tókum við metró í átt að Trocadero torginu þar sem við fengum frábært sjónarhorn á Eiffelturninn.

Eftir að hafa notið þess að skoða iðandi mannlífið gengum við að turninum og þrátt fyrir langa röð fóru flestir alla leið uppí topp. Útsýnið var stórkostlegt og ekki skemmdi fyrir að við náðum ljósaskiptunum sem var gullfallegt. Þar sem mannfjöldinn var gríðarlegur og biðraðir langar var klukkan orðin margt þegar við komumst heim á leið en náðum þá að sjá ljósin glitra á turninum á leiðinni sem var frábært. Þegar fólk var búið að næra sig var lagst til hvílu sem var án efa kærkomin eftir langan dag.

Daginn eftir fórum við gangandi með Signu að Louvre safninu þar sem við eyddum tíma í að skoða bæði bygginguna sjálfa og sögu hennar og auðvitað nokkur stórkostleg lykil-listaverk hvar nemendur fóru um í hópum í ratleik. Frá Louvre fórum við yfir í gamla hallargarðinn- Tuileries garðana og hvíldum lúin bein. Eftir hádegið áttum við stefnumót við Kristínu Jónsdóttur, Parísardömuna, sem fór með hópinn um hið sögufræga hverfi Le Marais, hvar við gistum.Hún þræddi með okkur um götur og torg og fræddi okkur um ótrúlegustu hluti sem snerta sögu Parísar. Gönguferðin endaði við minningarvegg í gyðingahverfinu þar sem minnst er barna úr hverfinu sem voru tekin af lífi í lok seinni heimstyrjaldar. Mjög áhrifamikið og átakanlegt.

Einnig fórum við að skoða Sigurbogann og hina sögufrægu götu Champs-Elyssés. Við heimsóttum Notre-Dame kirkjuna og það var ákveðinn hápunktur fyrir marga sem höfðu þá þegar fræðst um hana og byggingarstíl hennar í sögutímum Einnig fórum við að skoða Sigurbogann og hina sögufrægu götu Champs-Elyssés. Við heimsóttum Notre-Dame kirkjuna og það var ákveðinn hápunktur fyrir marga sem höfðu þá þegar fræðst um hana og byggingarstíl hennar í sögutímum. Að þeirri heimsókn lokinni var frjáls tími á listamannatorginu Place de Tertre þar sem einhverjir notuðu tækifærið og fengu teiknaða mynd af sér.

Hápunktur ferðarinnar fyrir marga var að fara í kvöldsiglingu á Signu sem var yndisleg upplifun, í fallegu veðri og toppurinn að sjálfsögðu að sigla framhjá Eiffelturninum með glitrandi ljósum.

Það var margt áhugavert sem varð á vegi okkar, til dæmis urðum við vitni að mótmælum fyrir utan skóla í nágrenninu og urðum vör við óeirðalögregluna á hestbaki. En sem betur fer náðu mótmælin ekki þeim krafti sem svo varð fyrr en við vorum farin. Gistiheimilið okkar var mjög stutt frá Bastillutorginu og við áttum oft leið þar um- þar sem uppúr sauð helgina eftir að við fórum og lögreglan beitti táragasi. Síðasta kvöldið okkar lá leiðin um Place de la République þar sem ansi öflug mótmæli höfðu átt sér stað fyrr um daginn. Svo það er óhætt að segja að við höfum sloppið vel. Við vorum einstaklega heppin með veður og sólin skein allt þar til síðasta daginn en þá var smávegis úrkoma. Reyndar var eiginlega slagveður seinnipart miðvikudagskvöldsins en nemendur höfðu orð á því að það væri bara frekar hressandi-  eins og að vera komin heim!

Nemendur stóðu sig með mikilli prýði í þessari ferð og lögðu sig fram um að nota frönskukunnáttuna sína og æfa sig í tungumálinu. Þeir sýndu sjálfstæði þegar kom að því að ferðast um og nýta frjálsan tíma, panta sér allskonar hefðbundinn mat og prófa eitthvað nýtt. Hluti af lokaverkefni þeirra er að útbúa dagbók úr ferðinni og einnig verkefni þar sem þau sýna myndskeið af sér í París að fjalla um það sem fyrir augu ber, á frönsku. Það er tilhlökkunarefni að sjá þær afurðir.

Við Hildur þökkum nemendum kærlega fyrir frábæra ferð, samheldni og samvinnu og vonum að nemendur geymi góðar minningar og að ferðin hafi orðið til að glæða enn frekar áhuga á frönsku og franskri menningu.

Birna Margrét Júlíusdóttir frönskukennari