Jólatónleikar kórs Menntaskólans að Laugarvatni verða haldnir í Skálholtskirkju dagana 20. og 21. nóvember næstkomandi. Uppselt er á föstudagstónleikana en nóg er til af miðum á laugardeginum.
Miðaverð í forsölu er 4.000 kr. en 4500 kr. ef greitt er við dyr. Frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Hægt er að panta miða með því að senda tölvupóst á Amelíu Írisi á netfangið aiu.08@ml.is
Tilhlökkun kórmeðlima er mikil, undirbúningur í fullum gangi og spennan í hámarki! Efnisskráin verður bæði hátíðleg og fjölbreytt. Ættu því öll að finna eitthvað við sitt hæfi.
Í kór Menntaskólans að Laugarvatni eru samtals 80 meðlimir. Þess má geta að 37 nýir kórmeðlimir bættust í hópinn á þessari önn. Það er því árleg áskorun fyrir kórstjóra að þjappa hópnum saman. Stefán Þorleifsson stýrir kórnum sitt annað skólaár.
Jólatónleikarnir gilda sem lokanámsmat kórmeðlima og er jafnframt mikilvæg fjáröflun fyrir starfið, meðal annars vegna rútuferða og ferðalaga innanlands sem utan. Kórinn fór til Stokkhólms í apríl á þessu ári og viljum við þakka öllum sem hafa styrkt hann veittan stuðning. Stefnt er að næstu utanlandsferð vorið 2029 ef allt gengur eftir.
Viðburðinn má finna á Facebook: https://fb.me/e/acm7MEAzd
Facebook-síða kórsins: https://www.facebook.com/share/17WYbb5PHK/?mibextid=wwXIfr
Fyrir tónleika föstudagsins býður Veitingastaðurinn Hvönn í Skálholti tónleikagestum upp á sérstakt tilboð á hamborgara og frönskum. Tilboðið kostar 3.790 kr. og er hægt að bóka borð fyrirfram hér: www.dineout.is/hvonn
Við vonumst til að sjá sem flesta í Skálholtskirkju! Kv. Margrét.


