gljufrastMiðvikudaginn síðasta, 14. nóvember, fóru tveir bekkir, 3F og 4N, í heimsókn á Gljúfrastein, safn Halldórs Laxness. Heimsóknin er hluti af áfanganum ÍSL503, þar sem nemendur fræðast um íslenska bókmenntasögu 20. aldarinnar og lesa eitt helsta stórvirki Laxness, Sjálfstætt fólk.

Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness frá 1945 og skrifaði hann þar margar af sínum vinsælustu bókum og höfðu jafnt nemendurnir sem kennarinn gaman af sýningunni. Það var tekið mjög vel á móti okkur á Gljúfrasteini og er við hæfi að benda á vandaða heimasíðu Gljúfrasteins.

 

Eftir heimsóknina var haldið í Egilshöllina þar sem hópurinn saddi sárasta hungrið. Þá var gert stutt stopp við grafreit skáldsins, en Halldór var jarðsettur á Mosfelli í Mosfellsdal. Ferðin heppnaðist afar vel og komu ML-ingar fullir af andagift heim í skólann. Ég þakka efri bekkingum og Pálma fyrir samveruna.

Aðalbjörg Bragadóttir íslenskukennari.

Myndir í myndasafni