hopmyndholaskogurNú hefur verið boðað til aðalfundar Foreldrafélags ML.

Bréf með fundarboðinu hafa verið send til allra foreldra nemenda við skólann, óháð aldri þeirra (nemendanna).

Fundarboðið er hér:

 

Aðalfundur
Foreldrafélags Menntaskólans að Laugarvatni
Verður haldinn í matsal skólans sunnudagskvöldið 25. september n.k. kl. 20:30
 Dagskrá:
  1. Skýrsla formanns
  2. Kynning á starfi heilsueflandi framhaldsskóla, þar sem Menntaskólinn að laugarvatni er þátttakandi í því verkefni.
  3. Kosningar. – Kjósa þarf einn nýjan inn í stjórn, úr hópi foreldra nýnema.
  4. Önnur mál.
 Mætum vel, foreldrar, og sýnum áhuga í verki.

 

Foreldraráð