Miðvikudaginn 18. mars lagði 2. bekkur af stað eldsnemma að morgni í sameiginlega bæjarferð stjórnmálafræði- og lífsleikniáfanga. Daginn átti að nýta vel í heimsóknir en ferðin flokkast undir samstarfs- og samskiptaverkefni í ML.
Nemendur 2.N, sem eru á náttúruvísindabraut, byrjuðu daginn á heimsókn í stoðtækjafyrirtækið Össur á meðan 2.F fór í heimsókn á Alþingi. N-bekkur fékk góðar móttökur, fyrirtækið var kynnt, gengið um íburðarmikið húsnæði fyrirtækisins og fengu nemendur að sjá mismunandi tegundir af stoðtækjum. Össur er virkilega stórt fyrirtæki með um 4000 starfsmenn í 36 löndum. Flestir kúnnar þess eru erlendir og sorglegt að segja frá því að í Úkraínu fer kúnnahópurinn ört stækkandi. Í fyrirtækinu starfa t.d. verkfræðingar, læknar, sjúkraþjálfarar, markaðsfræðingar og svo mætti lengi telja. Össur er duglegt að fá fólk í lið með sér sem hefur misst útlim til að prófa vörurnar og vöruþróunin er endalaus.
Nemendur í 2.F, sem eru á félags- og hugvísindabraut byrjuðu á að ganga um hið háa Alþingi, fræddust um sögu þess og þingstörfin. María Rut Kristinsdóttir alþingismaður hitti hópinn í lokin til að segja frá því hvernig er að vera í stjórnmálum og hvetja unga fólkið til þátttöku.
Eftir þessar heimsóknir var haldið af stað í Stúdentakjallarann þar sem við gæddum okkur á hamborgurum. Eftir matinn var gengið aðeins um Háskóla Íslands og kynnt sér húsnæðið. N-bekkur varð eftir í HÍ og fékk kynningu á náminu á meðan F-bekkur fór að heimsækja forsetann á Bessastaði.
Að lokum heimsóttu báðir bekkir Háskólann í Reykjavík. Gerð voru greinargóð skil á námsframboði og því sem fer fram í skólunum. Þessir skólar sem og aðrir háskólar á landinu hafa upp á margt að bjóða og er mikilvægt fyrir nemendur að kynna sér það. Skiljanlegt er að nemendur eigi erfitt með að velja eitthvað eitt með öll þessi frábæru námstækifæri sem bjóðast í dag.
Hér eru myndir úr bæjarferðinni.
Freyja stjórnmálafræðikennari og Margrét lífsleiknikennari

