Blítt og léttRúsína í pylsuenda kynningardags ML, fimmtudaginn 9. nóv.sl. var, ef svo má segja, söngkeppnni Mímis, nemendafélags Menntaskólans að Laugarvatni. Á svið stigu tólf ,,atriði“. Sum einsöngs, önnur tvísöngs, – atriði með bakröddum, hljófæraleikurum og eitt skipað heilli hljómsveit. Afar fjölbreytt og skemmtilegt. En eins og vandi er til um keppnir þarf að velja sigurvegara. Það vandasama hlutverk var í höndum dómarana Aðalheiðar Helgadóttur, Haffa Haff og Karls Hallgrímssonar.

Leikar fóru svo að nafnbótina skemmtilegasta atriðið fengu bræðurnir Guðjón Andri (4.F) og Ólafur Bjarni (3.N) Jóhannssynir. Þeir sungu Bonnie Tyler-lagið Holding Out for a Hero.  

Þriðja sæti hlaut Glódís Pálmadóttir (2.F) fyrir flutning sinn á hinu ljúfa Edit Piaf lagi, La Vie en Rose, í Louis Armstrong útgáfu. 

Annað sæti varð systranna Bjarnveigar Bjarkar (3.N) og Bergrúnar Önnu (1.N) Birkisdætra. Þær sungu Fleet Foxes lagið Tiger Mountain Peasant Song. Um undirleik á píanó sá þriðja systirin, Glódís Margrét Guðmundsdóttir.   

Sigurvegari kvöldsins var Guðbjörg Viðja Antonsdóttir (3.F) – lagið hennar var Bad Blood, söngkonunnar og lagahöfundarins NAO. Bakraddir voru Brynhildur, Guðný, Sunneva og Marta. Viðja mun þvi varðveita verðlaunagripinn Hljóðkútinn fram að næstu keppni.

Blíðar og léttar myndir eru hér.

vs