21. október síðastliðinn fengu kennarar Menntaskólans að Laugarvatni fræðsluerindi

um lesblindu og ábendingar um hvernig er hægt að leiðbeina og koma til móts við

nemendur með lestrarerfiðleika.

Kennurum grunnskóla Bláskógabyggðar á Laugarvatni var einnig boðið að hlýða á fræðsluna.

Snævar Ívarsson, framkvæmdastjóri Félags lesblindra á Íslandi, hélt erindið og er áhugasömum

bent á að allir geta skráð sig í félagið. Fyrirlesturinn var fróðlegur og hægt er að nálgast

góðar upplýsingar á vef Félags lesblindra, Félag lesblindra (lesblindir.is)

Jóna Katrín