Vortónleikar kórs Menntaskólans að Laugarvatni voru haldnir á sumardaginn fyrsta í Skálholtskirkju. Í boði voru tvennir tónleikar og var þéttsetin kirkjan á báðum þeirra. Á efnisskránni voru afar fjölbreytt lög, flest íslensk. Sem dæmi flutti kórinn lögin Ísland farsælda frón, Fáninn, Ég að öllum háska hlæ, Dómar heimsins, Ómissandi fólk, Forget Me Not, Hálka lífsins og sjálfan þjóðsönginn.

Í lagi Laufeyjar Línar, Forget Me Not, söng Amelía Íris einsöng og í Nýdanskarlaginu Hálka lífsins söng Jakob Þór einnig einsöng. Einu erlendu lögin sem sungin voru af töfrandi röddum ungmennanna voru Iris með hljómsveitinni Goo Goo Dolls og auðvitað ABBA-lagið SOS eftir Svíþjóðarferðalagið ógleymanlega.

Kórmeðlimir sáu um undirleik í nokkrum lögum. Aðalheiður Sif Guðjónsdóttir lék á fiðlu, Valgeir Ágústsson og Magnús Arngrímur Sigurðsson á píanó, Sveinn Bjarki Markússon á bassa, Vésteinn Loftsson á básúnu, Stefán Gunngeir Stefánsson á trommur. Þá fékk Stefán kórstjóri gítarsnillinginn Árna Þór Guðjónsson til liðs við sig í undirleiknum.

Mikill léttleiki og gleði einkenndi flutninginn og má með sanni segja að Stefán Þorleifsson hafi náð frábærum árangri með kórinn á sínu fyrsta starfsári. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu. Hann stjórnar kórnum af mikilli gleði og nær að smita bæði kórfélaga og áheyrendur með brosi sínu og innlifun.

Vortónleikar marka ávallt ákveðin þáttaskil í sögu kórsins þar sem þeir eru lokaverkefni skólaársins og 3. bekkingar kveðja áður en þau halda á vit nýrra ævintýra. Óskum við þeim velfarnaðar í komandi verkefnum og kveðjum þau með söknuði.  

Við viljum að lokum þakka öllum þeim sem hafa mætt á tónleika kórsins kærlega fyrir stuðninginn og hvatninguna.

Sjá má myndir hér: 2026-04-23 Vortónleikar kórsins 

Kær kveðja,

Margrét Elín Ólafsdóttir

Verkefnastjóri kórsins