MLfyrirmyndar2Skólanum var slitið og stúdentar brautskráðir laugardaginn 24. maí.  Það voru brautskráðir 35 stúdentar,  19 af félagsfræðabraut og 16 af náttúrufræðabraut. Árangur þessa hóps var óvenju glæsilegur og það má segja að með honum hafi sannast einn helsti kostur bekkjakerfisins: samheldni og stuðningur jafningja.

Sex nýstúdentanna hlutu aðaleinkunn (vegið meðaltal 4 ára náms) sem er 9.0 eða hærri og fremst meðal jafningja var Þjóðbjörg Eiríksdóttir frá Gýgjarhólskoti í Biskupstungum með einkunnina 9,89, sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi frá skólanum.  Með þessu afreki sló Þjóðbjörg bræðrum sínum, þeim Ögmundi og Jóni Hjalta, við, en þeir þeir luku stúdentsprófi frá skólanum 2009 og 2011.

studentar14forml

Aðrir nýstúdentar sem náðu afburða árangri voru: Daði Geir Samúelsson, frá Bryðjuholti í Hrunamannahreppi (frændi Þjóðbjargar), Þórhildur Hrafnsdóttir frá Ólafsvík, Bjarni Sævarsson frá Arnarholti í Biskupstungum (frændi Þjóðbjargar), Svanhvít Helga Jóhannsdóttir frá Svínafelli í Öræfum og Hafþór Ingi Ragnarsson frá Birtingaholti í Hrunamannahreppi.

Hæstu meðaltalseinkunn í skólanum á þessu ári, 10.0, hlutu þær Þjóðbjörg og Guðbjörg Hrönn Tyrfingsdóttir í 2. bekk, en hún er frá Ljónsstöðum í Sandvíkurhreppi (Árborg).

Fimm nýstúdentar hlutu styrk úr Styrktarsjóði Kristins og Rannveigar: Þjóðbjörg Eiríksdóttir, Daði Geir Samúelsson, Þórhildur Hrafnsdóttir, Bjarni Sævarsson og Svanhvít Helga Jóhannsdóttir.

Júbílantar fjölmenntu að vanda og færðu skólanum og nemendum góðar gjafir. Þeir fögnuðu afmælum sínum með ágætri veislu um kvöldið og snæddu morgunverð í Garði áður en þeir héldu heim á leið daginn eftir.  

pms

Nokkrar myndir frá skólaslitadeginum