Nemendur í áfanganum Kvikmyndir og saga brugðu undir sig betri fætinum nýverið og fóru ásamt kennara sínum og Pálma Hilmarssyni bílstjóra yfir heiðar til höfuðborgarinnar.  Fyrsti áfangastaður var reyndar í Hafnarfirði, þar sem Kvikmyndasafn Íslands er til húsa. Starfsmenn Kvikmyndasafnsins, Gunnar Tómas Kristófersson og Björn Þór Björnsson, tóku á móti hópnum og sögðu frá starfsemi safnsins, sýndu gamlar myndir, sýningarvélar og aðra muni, kvikmyndageymslur, tæki og tól til að spila gamlar filmur og færa þær yfir í stafrænt form. Þeir leystu greiðlega úr öllum spurningum og hjá þeim kom fram að nýlega bárust safninu myndir sem teknar voru upp á Laugarvatni kringum árið 1955 og sýna skólastarf og umhverfi staðarins á þeim tíma. Fengum við að sjá brot úr myndunum og vakti það mikla forvitni. Vonir standa til að hægt verði að sýna þessar myndir hér á Laugarvatni næsta vetur.

Eftir góða heimsókn í Kvikmyndasafnið var haldið til Reykjavíkur og sest inn í Bíó Paradís, menningarbíó landsins. Kvikmynd dagsins var Engin annar möguleiki, No Other Choice, gerð af leikstjóranum Park Chan-wook og gerist í Suður-Kóreu. Sagan er sambland af spennu, glæpum og gamni. Mjög nútímaleg og vel gerð með skemmtilegum snúningum í handriti og kvikmyndatækni.

Að lokinni sýningu var haldið á veitingastaðinn Hard Rock Cafe í Lækjargötu (þar sem einu sinni var Nýja Bíó, stofnað árið 1920).  Pálmi skilaði okkur þreyttum og þakklátum heim á Laugarvatn að kvöldi.

Sigurður Pétursson.