Spurningakeppni framhaldskólanna, Gettu Betur hófst í byrjun vikunnar í streymi á rúv.is. Fyrsta keppni hjá Menntaskólanum að Laugarvatni verður

fimmtudaginn 13. janúar kl. 20:20.

Lið ML skipa  Þorbjörg Guðrún Kristófersdóttir, Þórhildur Þorsteinsdóttir og Brynjar Logi Sölvason. Keppendurnir eru allir á sínu öðru ári í menntaskólanum.

Tómstundaformaður í stjórn nemendafélagsins MÍMIS hefur umsjón með Gettu betur liðinu segir liðið hafa æft stíft og notið þar m.a. aðstoðar frá Jóni Snæbjörnssyni kennara. Áhuginn hjá keppendum sé gríðarlegur og metnaður hjá hópnum að standa sig.

Óskar Snorri Óskarsson tómstundaformaður