Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 17. júní til og með 9. ágúst.  Við opnum hana að nýju miðvikudaginn 10. ágúst kl. 9:00.

Stjórnendur og gjaldkeri/fjármálastjóri munu svara fyrirspurnum á ml@ml.is eftir föngum í sumar.  Netfang gjaldkera og fjármálastjóra er fjarmal@ml.is 

Upplýsingar til nýnema má sjá í bréfi til þeirra sem sent verður út seinni hluta júnímánaðar.

Nýnemar og foreldrar/forráðamenn þeirra mæti mánudaginn 22. ágúst kl. 13:00.  Eldri nemar mæti að kvöldi þriðjudagsins 23. ágúst.  Skólasetning verður þann 24. ágúst kl. 8:30.

Skipað verður niður á heimavistir í sumar.

Kær sumarkveðja til allra núverandi og verðandi ML-inga.

Skólameistari