Skrifstofa Menntaskólans að Laugarvatni er lokuð frá og með 21. júní til og með 8. ágúst vegna sumarleyfa. Skrifstofan opnar fimmtudaginn 9. ágúst kl. 9:00. Hafa má samband við stjórnendur í sumarleyfi með tölvupósti á ml(hjá)ml.is og verður honum þá svarað eftir föngum. Eins er hægt að senda tölvupóst á gjaldkera mötuneytisins um málefni sem það snertir á erna(hjá)ml.is
Starfsfólk ML þakkar nemendum og foreldrum/forráðamönnum þeirra samstarf og samveru á liðnu skólaári.
Njótið vel í námi, lífi og starfi.
Halldór Páll Halldórsson
skólameistari