Minning Bjarna Bjarnasonar heiðruð á Laugarvatni

Það var hátíðleg stund þegar málverk eftir Ásgrím Jónsson, eitt af dýrmætum fjölskyldugersemum Bjarna Bjarnasonar, fyrrverandi skólastjóra, var fært Menntaskólanum að Laugarvatni (ML) sunnudaginn 25. maí. Málverkið sem sýnir Þingvelli hefur verið í eigu fjölskyldunnar í áratugi og tengist sögu skólans og sterkum böndum.

Bjarni Bjarnason var forvígismaður í uppbyggingu menntastarfs á Laugarvatni. Hann gegndi embætti skólastjóra Héraðsskólans á Laugarvatni um árabil og var einn helsti hvatamaður að stofnun Menntaskólans að Laugarvatni árið 1953. Með eldmóði og framtíðarsýn lagði hann grunn að því sem síðar varð einn af lykilmenntastofnunum landsins. Áhrif hans sjást enn í menningar- og skólasögu svæðisins.

Málverkið var upphaflega gefið Bjarna af Laugarvatnsskólanum árið 1949 þegar hann varð sextugur. Það hefur síðan fylgt fjölskyldunni, fyrst á heimili hans og síðar á Húsavík. Eftir andlát dóttur hans, Védísar Bjarnadóttur, var það ósk fjölskyldunnar að verkið yrði fært aftur til skólans – í samræmi við óskir Bjarna sjálfs.

„Það var sérstök tilfinning að fara með málverkið hans afa, langafa og langalangafa á Laugarvatn,“ sagði Þorbjörg Vilhjálmsdóttir, dótturdóttir Bjarna, sem tók þátt í afhendingunni. „Þetta var dagur tileinkaður afa og ósk hans rættist loks.“

Skólameistari ML tók á móti verkinu og hefur það nú fengið virðulegan stað innan veggja skólans. Fjölskyldan lýsir mikilli ánægju með að verkið sé nú komið aftur „heim“ – á stað sem tengist sögu þess og minningu Bjarna Bjarnasonar sterkum böndum.