Nemendur í Yndislestri og skapandi skrifum, ásamt Pálma og  Elínu Unu íslenskukennara,  héldu sl. mánudag í  sannkallaðan ,,lystitúr“. Það er við hæfi að kalla ferðina þessu nafni því Halldór Laxness notaði það í fleiri en einni bók um ferðir sem farnar voru til að skemmta sér og menntast. Fyrsti áfangastaðurinn var einmitt hús skáldsins að Gljúfrasteini. Þar fengu nemendur leiðsögn um sýninguna ,,Frjáls í mínu lífi“ og meðtóku heimilisbraginn, söguna, listina og skáldskapinn. Að því loknu var haldið niður í miðbæ Reykjavíkur og skundað þar um strætin. Góðri stund var m.a. varið í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi. Þar fengu nemendur sér kaffisopa og blöðuðu í heimsbókmenntunum, flettu fróðleiksritum og lásu ljóð eins og sæmir sönnum  menningarvitum. Þá lá leiðin í Bíó Paradís þar sem kvikmyndafræðingurinn Oddný Sen tók á móti nemendum og sýndi þeim myndina Psycho eftir Hitchcock. Að því loknu ræddi og útskýrði Oddný aðferðir og einkenni Hitchcock. Á leiðinni heim mátti ekki á milli greina hvort meira var rætt um morðóða mömmudrengi eða ljóð og kaffidrykki.  Góður rómur var gerður að þessum lystitúr.

Hérna eru myndir úr lystitúrnum

Elín Una Jónsdóttir íslenskukennari