Tíminn líður og það styttist í það að námsmatstíminn hefjist þann 7. maí.  Nám og kennsla verður áfram með rafrænum hætti eins og verið hefur og út alla önninni og einnig verður námsmat í fjarvinnu.  Skipulag námsmatstímans verður birt á heimasíðu skólans um miðja næstu viku.

Útskrift er áætluð í skóladagatali 23. maí en vænta má að sú dagsetning breytist.  Ákvörðun um tímasetningu, skipulag og form útskriftar á þessum sérstöku tímum verður tekin síðar.

Það er farið að vora en gleymum okkur ekki!  Enn eru í gildi varúðarreglur almannavarna og við hlýðum þeim.

Halldór Páll Halldórsson, skólameistari