Umhverfisfr.ferðNemendur í Umhverfis- og vistfræði LÍFF1UF04 fóru í ferð á dögunum. Hópurinn er aðallega skipaður nemendum úr 1. N og 1. F. Dagurinn var nokkuð þétt skipaður af atriðum sem tengjast efni áfangans. 

Fyrsta stopp var á Sólheimum í Grímsnesi þar sem nemendur fengu fræðslu um sjálfbært samfélag, vistvæna kosti í húsbyggingum og moltugerð svo fátt eitt sé nefnt. Nemendur röltu um byggðakjarnann og fengu meðal annars að kíkja inn í gróðurhúsin og kynna sér starfsemina. 

Því næst var brunað á höfuðborgarsvæðið. Mannskapurinn var fóðraður á Café Atlanta þar sem Gaukur Eyjólfsson kokkur og frændi margra úr hópnum sá til þess að allir yrðu mettir. 

Því næst var farið í Gámaþjónustuna og tók þar á móti okkur stöðvarstjórinn sem veit allt um sorp. Við ókum í gegnum gámasvæðið hjá þeim, inn í risastóra skemmu og sáum hvernig allt ferlið við endurvinnslu fer fram. Nemendur var nokkuð brugðið við að sjá alla staflana af flokkuðu plasti og pappír út um allt sem og að kynna sér þvílíka magnið af moltu sem unnin er á vegum Gámaþjónustunnar. Mikill metnaður var hjá starfsfólki Gámaþjónustunnar um að fræða okkur sem mest og best um allt er snéri að flokkun á sorpi – eða hráefni eins og þeir kjósa að kalla það, því mikið af sorpi er hægt að selja í frekari endurvinnslu í erlendum endurvinnslustöðvum. 

Næsta stopp var í Furu. Þar eru vörubretti hökkuð og búin til úr þeim spænir í undirburð sem nýtist í landbúnaði. Þar eru líka ónýtir bílar hakkaðir í spað og efnin sem bílarnir eru gerðir úr flokkuð í sundur og seld í endurvinnslu, meðal annars í Asíu. Þessi staður var alveg magnaður, bílahakkavélin getur hakkað 42 bíla á klukkutíma og alveg sáralítið sem fer inn í hana kemur út sem sorp sem þarf að urða. Það er alveg magnað hversu mikið er hægt að endurvinna. 

Að lokum var stoppað í Sorpu og þar ókum við líka í gegnum flokkunarstöðina og fengum að kynnast því hvernig sorpflokkun fer fram. 

Þessi ferð var með eindæmum fræðandi og það er virkilega gaman að koma heim með alla þessa vitneskju. 

Nemendur stóðu sig líka með sóma líkt og við var að búast.

Pálmi Hilmarsson tók nokkar myndir sem eru hér.

Ragnhildur Sævarsdóttir kennari.