Skrifstofa skólans er lokuð frá og með 17. júní til og með 11. ágúst. Við opnum hana að nýju mánudaginn 12. ágúst kl. 9:00.
Stjórnendur og gjaldkeri/fjármálastjóri munu svara fyrirspurnum á ml@ml.is eftir föngum í sumar. Netfang gjaldkera og fjármálastjóra er fjarmal@ml.is
Upplýsingar til nýnema má sjá í bréfi til þeirra sem sent verður út seinni hluta júnímánaðar.
Nýnemar og foreldrar/forráðamenn þeirra mæti mánudaginn 19. ágúst. Eldri nemar mæti að kvöldi þriðjudagsins 20. ágúst. Skólasetning verður þann 21. ágúst kl. 8:30.
Skipað verður niður á heimavistir í sumar og upplýst um herbergjaskipan í upphafi haustannar.
Kær sumarkveðja til allra núverandi og verðandi ML-inga.
Skólameistari