Sigurvegari söngkeppninnar Blítt og létt 2026 er Sigurður Emil Pálsson með lagið Stimpla migút eftir Valdimar Guðmundsson en keppnin fór fram fimmtudagskvöldið 29. október. Glöggir fylgjendur Menntaskólans að Laugarvatni átta sig eflaust á því að um sama sigurvegara er að ræða og í fyrra en Sigurður er afar flottur söngvari. Það sama má reyndar segja um aðra keppendur því keppnin var hin glæsilegasta í ár og skólinn fullur af afreksfólki á tónlistarsviðinu!
Annað sæti skipaði söngdívan Sara Nadía Gunnarsdóttir með lagið Ég sé þig eftir Björgvin Halldórsson í útsetningu Jóhönnu Guðrúnar. Í þriðja sæti var líflegur og skýrmæltur Bergur Tjörvi Bjarnason með lagið Lukkutroll með Ljótu hálfvitunum. Skemmtilegasta atriðið var svo ekki af verri endanum enda rappsigur af mikilli snilld í flutningi Bakkabræðra. Rapptríóið skipa þeir Gísli, Eiríkur og Guðjón; Gísli Guðnason, Eiríkur Gylfi Janusson og Guðjón Ingi Guðlaugsson.
Dómnefndin var skipuð þeim Pálma Gunnarssyni, Unni Malín Sigurðardóttir og Elva Rún Pétursdóttir og afhentu þau sigurvegaranum Hljóðkútinn við dynjandi lófatak þeirra sex hundruð gesta sem voru í húsi. Undirleikur var í færum höndum hljómsveitarinnar Stone Stones og kynnar kvöldsins voru þau Hjördís Katla Jónasdóttir og Ingvar Jökull Sölvason en þau luku námi við ML seinasta vor. Hljóð- og ljósastýring var í höndum EB-kerfa og var umgjörð og skipulag kepninnar í heild sinni í höndum nemendafélagsins Mímis að vanda. Yfirbragð keppninnar var í heild sinni hið glæsilegasta og fá öll þau er lögðu hönd á plóg við keppnina bæði þakkir og hrós fyrir sitt framlag.
Í aðdragandi söngkeppninnar var nemendum úr 10. bekkjum á Suðurlandi boðið upp á kynningu á Menntaskólanum að Laugarvatni. Dagskráin fór að öllu leyti vel fram og eru gestunum færðar sérstakar þakkir fyrir komuna og fyrir ánægjulega samveru.



