Skidamynd_frettÁ slaginu kl. 13.05 fimmtudaginn 13. janúar lagði hópur sem taldi 37 nemendur ásamt útivistarkennurunum Óla og Smára og Pálma sem keyrði rútuna, af stað til Akureyrar. Ferðin norður gekk vel, stoppað á nokkrum stöðum til að pikka upp búnað sem komið var með í veg fyrir hópinn. Áningarstaðir voru Hyrnan í Borgarnesi, og N1 á Blönduósi. Við komum til Akureyrar kl. 19:50 og fórum beina leið í mat sem búið var að panta á Litlu kaffistofunni. Sveittur og góður borgari þar ásamt frönskum. Síðan var farið í KA heimilið þar sem hópurinn gisti alla ferðina. Þegar allir voru búnir að finna sér pláss var slakað á eða farið í fótbolta en opið var í salinn og vakti það stormandi lukku. Um miðnættið var þó farið að koma ró á hópinn svo hægt væri að fara á fætur á skikkanlegum tíma.

Kl. 8:30 voru nemendur vaktir í morgunmat. Hópurinn var svo mættur í Skautahöllina kl. 10.00 og var byrjað á nokkrum léttum grunn- og undirbúningsæfingum og síðan keppt í íshokkí. Mikill hamagangur, fjör og læti og allir ánægðir með þetta. Virkilega góð aðstaða í Skautahöll Akureyrar og vel tekið á móti okkur. Þaðan fórum við rakleiðis í mat í Menntaskólann á Akureyri. Í boði var þessa fíni kjúklingaréttur og ís á eftir. Þessi heimsókn í Menntaskólann á Akureyri tók fljótt af og allir sáttir.

Eftir smástopp í KA heimilinu fórum við áfram í Hlíðarfjall, þar sem byrjað var á að finna búnað á þá sem þurftu að leigja sér bretti, skíði eða annað sem þurfti með. Góður undibúningur skilar sér en lögð hafði verið töluverð vinnu í að útbúa lista með óskum allra og senda norður nokkrum dögum fyrir skíðaferðina. Einnig er búið að gera enn rúmbetri aðstöðu fyrir skíðaleiguna núna, en hún var bætt töluvert í fyrra, þannig að allt þetta hjálpaði til við að stytta biðtímann eftir búnaðinum.

Veður og færi var frábært að sögn þeirra sem voru í brekkunum. Logn, léttskýjað og nokkurra stiga frost. Fyrst fóru flestir nemendur, sérstaklega þeir sem voru byrjendur, í skíðakennslu hjá farastjórum og skíðaleiðbeinendum ML-hópsins. Gekk það mjög vel og voru allir nemendur mjög duglegir og áhugasamir. Þegar leið á fóru nemendur meira að skíða frjálst.

Útbúin var nestisaðstaða í skálanum sem krakkarnir gátu gengið í eftir hentugleika. Um kvöldmatarleytið sigum við heim á leið og þá beina leið í sund eftir að hafa skíðað mikið og var m.a. horft á Ísland valta yfir Ungverja á HM í handbolta. Í kvöldmat hituðum við pylsur með öllu og eftir það var brunað í bíó. Meðal annars var farið á TRÚÐANA dönsku. Um eitt eftir miðnætti voru svo flestir komnir í pokana og sofnaðir enda langur skíðadagur framundan.

Laugardagur rann upp. Frábært skíðaveður, nokkurra stiga frost, nánast logn og bjart. Gat ekki verið betra. Eftir ágætan morgunverð lá leiðin beint á skíði en nú voru komnir mun fleiri í brekkurnar en í gær. Allir gátu gengið beint að sínum búnaði sem hafði verið settur í rútuna okkar kvöldið áður þannig að lítil sem engin töf varð við það. Síðan fór dagurinn einfaldlega í brun, svig, brettastökk o.fl. skemmtilegt sem hæfði hverjum og einum. Við fengum úthlutað rými á efri hæð skálans þar sem við vorum sér og gátum haft nestið standandi þar allan tímann svo hægt var að fá sér snarl þegar hver og einn vildi. Kl. 16.00 var svo lokað í lyfturnar og við héldum heim á leið. Flestir fóru í sund og heita pottinn en nokkrir kusu að hvíla lúin bein í KA heimilinu. Eftir sundið voru sóttar pizzur í Dominos og þeim gerð góð skil á gististaðnum yfir landsleik Íslands og Brasilíu á HM í handbolta þar sem Ísland vann örugglega með 8 mörkum 34 – 26. Slökun var svo það sem eftir lifði kvölds þó aðeins hafi dregist að koma ró á hópinn, en það er nú allt í lagi – þetta er ungt og leikur sér og næg orka í tönkunum þegar gaman er.

Við fórum á fætur á sunnudag upp úr kl. 08.30 í morgunmat og tiltekt í framhaldi af því. Lögðum af stað heim á leið kl. 10.30 og um kl. 12:30 komum við á Blönduós. Þar var hádegismatur í Pottinum og pönnunni sem er virkilega fínn matsölustaður við hlið N1. Óhætt að mæla með honum enda voru krakkarnir ánægð með fisk og pasta og súpu í forrétt. Aðeins höfðum við áningu í Staðarskála og einnig Hyrnunni í Borgarnesi. Loks var stoppað við KFC í Mosfellsbæ, þar sem þeir sem það vildu fengu sér kjúklingabita eða hamborgara. Komið var á Laugarvatn um kl. 19.15, sem var rúmum klukkutíma fyrr en í fyrra, þar sem nýi Lyngdalsheiðarvegurinn stytti leiðina svolitið. Allir komu heim ánægðir eftir sérlega velheppnaða ferð með góðum nemendum og fararstjórum.

 

Ólafur Guðmundsson,  Pálmi Hilmarsson,  Smári Stefánsson.