Nú eru nemendur komnir í sætin sín og starfsfólkið á básana. Skólastarfið í ML er farið af stað og gleði og tilhlökkun hafa einkennt fyrstu dagana þetta haustið. Skírn í Laugarvatni tókst einstaklega vel til en 54 nýnemar voru vígðir í vatninu, ásamt tveimur eldri nemendum. Dularfull þoka lá yfir vatninu og léði athöfninni viðeigandi hátíðleik.
Nýnemaskírnin fléttar saman hefðir, nýjar og gamlar. Útskriftarefnin leiða athöfnina og fara á undan með góðu fordæmi; í skrautlegum fötum með gleðina og atorkuna sem verkfæri. Nýnemarnir leysa nokkrar þrautir og verkefni á leið frá skólanum að vatninu, með viðkomu hjá styttu Jónasar Jónssonar frá Hriflu. Jónas, ásamt fleiri menntaforkólfum, voru í forgöngu um að Menntaskólinn að Laugarvatni var stofnaður.
Fyrsta vikan í starfi ML snýst um að taka á móti nýnemum og vígja þau inn í skólastarfið. Nemendafélagið Mímir stóð svo fyrir dansleik í Úthlíð föstudaginn 21. ágúst. Framundan eru spennandi vikur en við ætlum til að mynda í fjallgöngu saman allur skólinn, fara í útivistarferðir, þriðji bekkur til Parísar og/eða Berlínar og kórtónleikar í undirbúningi svo fátt eitt sé nefnt.
Hér er hlekkur á myndasafnið 2026-08-25 Skírn | Flickr



