Dagana 4.–8. október fóru 23 nemendur í Berlínaráfanga í námsferð til höfuðborgar Þýskalands. Berlín er borg sem kemur sífellt á óvart og býr yfir miklum fjölbreytileika. Þar má finna söfn, byggingar og minnisvarða sem minna okkur á viðburðaríka og óhugnanlega sögu borgarinnar. Ferðin var því kjörið tækifæri til að kynnast þýskri sögu og menningu, æfa tungumálið og upplifa borgina af eigin raun.
Við vorum svo heppin að lenda tímanlega á sunnudegi og náðum því að heimsækja flóamarkaðinn í Múrgarðinum (Mauerpark). Veðrið lék við okkur alla ferðina með sólskini og yfir 20 stiga hita. Garðurinn iðaði af lífi, fólk skoðaði varning á markaðnum, prúttaði við sölumenn, söng í karókí og gæddi sér á þýskum pylsum. Um kvöldið var haldið á Alexanderplatz og þeir sem vildu fóru upp í sjónvarpsturninn (Fernsehturm) og nutu útsýnisins yfir borgina. Eftir svefnlausa nótt voru afar þreyttir en sælir ferðalangar sem lögðust til hvílu á gistiheimilinu við Rosenthaler Platz.
Á næstu dögum skoðuðum við mörg af þekktustu kennileitum borgarinnar. Meðal annars Safnaeyjuna (Museumsinsel), dómkirkjuna, Humboldt háskólann, Bebelplatz, Potzdamer Platz og fyrrum landamærastöðina Checkpoint Charlie. Einnig heimsóttum við Topographie des Terrors, safn sem kortleggur hryllinginn á tímum nasismans, og fórum í bátsferð á ánni Spree. Þar nutum við útsýnisins og sáum borgina frá öðru sjónarhorni.
Einn af hápunktum ferðarinnar var án efa Múrtúrinn með Berlínum. Hinrik og Jóhannes sögðu frá sögu Berlínarmúrsins og áhrif hans á líf fólks í borginni. Leiðsögnin gaf nemendum dýpri skilning á því hvernig múrinn skipti Berlín í austur- og vesturhluta á árunum 1961–1989. Einnig sáu nemendur ummerki um múrinn og fengu að kynnast þessum mikilvæga kafla sögunnar á lifandi hátt.
Heimsóknin í Reichstag, þinghús Þýskalands, var einnig eftirminnileg. Þar fengum við leiðsögn um þinghúsið og fræddumst um sögu þess og þýska þingið. Leiðsögumaðurinn, Bandaríkjamaður sem hefur búið lengi í Berlín, sagði auk þess frá því þegar hann var eitt sinn yfirheyrður í fjórar klukkustundir eftir að hafa gleymt að taka úr bílnum sínum „fasistatímarit“ á leiðinni yfir til Austur-Berlínar. Að lokum lá leiðin upp í glæsilega glerkúpulinn, þaðan sem útsýni yfir Berlín er stórbrotið.
Ferðin var einnig mikilvægur hluti af þýskunáminu. Hver nemandi fékk úthlutað ákveðnum stað til að kynna sér og sagði frá í ferðinni. Það var afar skemmtilegt að heyra nemendur fræða hópinn um hina ýmsu sögufrægu staði. Nemendur unnu einnig að lokaverkefni áfangans þar sem þau tóku upp myndbönd af sér tala þýsku við ýmsar aðstæður. Þannig fengu þau tækifæri til að nota þýskuna í raunverulegum aðstæðum og tengja það sem þau hafa lært í kennslustofunni við daglegt líf.
Á milli skoðunarferða og verkefna gafst tími til að njóta borgarinnar, skoða verslanir, fara í dýragarðinn og kynnast mannlífinu í ólíkum hverfum. Meðal annars var farið um Kurfürstendamm, eina þekktustu verslunargötu Vestur-Berlínar, og skoðuð kennileiti á borð við Minningarkirkju Vilhjálms keisara og Sigursúluna.
Ferðin var í alla staði lærdómsrík og skemmtileg. Hún gaf nemendum tækifæri til að tengja námsefnið við raunveruleikann, en slík reynsla er afar dýrmæt í tungumálanámi. Við komum heim með nýja þekkingu, góðar minningar og vonandi enn meiri áhuga á þýsku og þýskumælandi heimi.
Kærar þakkir til nemenda fyrir frábæra ferð.
Margrét Elín Ólafsdóttir, þýskukennari










