
Ennþá búum við við einelti vítt og breytt um samfélagið.
Ætli það sé ekki svo, þegar grannt er skoðað, að mannskepnan er komin styttra á þróunarbrautinni (frá hænunum í hænsnakofanum), en hún vill oft vera láta. Einhverjir eðlisþættir virðast kalla á að við reynum að troðast hærra í einhverjum ímynduðum virðingarstiga á kostnað annarra, frekar en á eigin verðleikum.
Það er hinsvegar svo, að það ástundar enginn einelti á þeim tíma sem það á sér stað. Það eru allir á móti einelti. Það skilur enginn í hvað það er sem fær fólk til að leggja aðra í einelti. Þrátt fyrir þetta verður fólk fyrir einelti.
Hvernig má það vera?
Í dag kl. 13:00 hringdu nemendur og starfsfólk ML skólabjöllunni til stuðnings andófinu gegn einelti. Þetta fór þannig fram að það var mynduð röð á ganginum þar sem bjallan er. Þá hringdi hver maður bjöllunni þrisvar. Þessi uppákoma stóð yfir í 7 mínútur.
pms
MYNDIR Í MYNDASAFNI