52 nýstúdentar útskrifuðust úr Menntaskólanum að Laugarvatni laugardaginn 23. maí 2026 við hátíðlega brautskráningarathöfn.
Fjölskyldur, vinir og velunnarar skólans söfnuðust saman til að fagna með nýstúdentunum í lok þriggja ára framhaldsskólanáms við ML.
Jóna Katrín Onnoy Hilmarsdóttir skólameistari fagnaði gestum og nýstúdentum í ræðu sinni og þakkaði foreldrum og aðstandendum sérstaklega fyrir hlut þeirra í skólastarfinu. Hún dró fram gildi þess lýðræðislega starfs sem einkennir ML og lagði áherslu á félagslíf og virka þátttöku nemenda sem grunn að sjálfstæðri hugsun og borgaravitund.
Duxar
Tveir nemendur hluta duxtitilinn – Eva Rut Jóhannsdóttir frá Hveragerði og Óskar Ingi Eyþórsson frá Selfossi – bæði með einkunnina 8,75. Semi dux varð Hrefna Erla Hannesdóttir frá Kópavogi með einkunnina 8,63.
Dux scholae meðal allra nemenda skólans var nemandi í 1. Bekk; Ómar Azfar Valgerðarson Chattha frá Hellu með einkunnina 9,3, en semi dux scholae varð Andrea Sjöfn Atladóttir með 9,2 sem er einnig nemandi í fyrsta bekk ML.
Styrktarsjóður Kristins og Rannveigar
Fjórir nemendur hlutu styrk úr Styrktarsjóði Kristins og Rannveigar, að upphæð 80.000 krónur hvert, fyrir framúrskarandi frammistöðu bæði í námi og félagsstörfum. Styrkþegar ársins voru Óskar Ingi Eyþórsson, Eva Rut Jóhannsdóttir, Hrefna Erla Hannesdóttir og Kamilla Sól Valdimarsdóttir Nokkala.
Tónlist og ávörp
Hluti nýstúdentanna flutti tvö lög undir stjórn Stefáns Þorleifssonar, stjórnanda kórs ML. Kórfélagarnir fluttu lögin Orðin mín eftir Braga Valdimar Skúlason og Smávinir fagrir, lag eftir Jón Norðdal við ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Fulltrúi nýstúdenta, Lilja Björk Sæland, fyrrum stallari Mímis ávarpaði samkomuna í hnyttinni ræðu og Sigurpáll Árnason flutti ræðu fyrir hönd afmælisárganga. Sigurpáll var fulltrúi 20 ára júbílanta og skipulagði hátíðarkvöldverð júbílanta sem fór fram síðar um daginn. Athöfninni lauk með skólasöngnum Til fánans og sleit skólameistari þar með 74. starfsári skólans. Að athöfn lokninni var nýstúdentum og gestum boðið til kaffisamsætis í matsal ML.









