Brautskráning frá Menntaskólanum að Laugarvatni fer fram laugardaginn 22. maí 2021, kl. 12:00.

Útskrifaðir verða 23 nemendur af Félags- og hugvísindabraut og 14 nemendur af Náttúruvísindabraut.

Athöfnin verður haldin í Íþróttahúsinu á Laugarvatni.

Grímuskylda verður á athöfninni og verður salurinn svæðaskiptur. Mikilvægt er að gestir á athöfn fari eftir leiðbeiningum

starfsmanna varðandi umferð í húsinu og aðra umgengi.

Útskriftarefni mæti tímanlega kl. 10:00.

Hver útskriftarnemi mun fá að bjóða með sér 3 gestum.

Gestir mæti eigi síðar en kl. 11:50.

Athöfnin hefst stundvíslega kl. 12:00.

Athöfninni verður streymt og verður því hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu á netinu.

Hlekkur sem leiðir fólk inn á streymið er hér.

Stjórnendur