skirninkvh42Í vikunni sem er að líða fögnuðum við ML-ingar nýjum nemendum með talsvert öðrum hætti en tíðkast hefur. Ýmsar hefðir, sem hafa tengst þessari viku, og sem hafa verið nokkuð umdeildar, voru lagðar af, en í stað þeirra var unnið að breytingum sem fela í sér gjörbreytta nálgun að inntöku nýnema í samfélag nemenda.  

Þó svo undanfarin ár hafi margt breyst í jákvæða átt að þessu leyti, fól móttakan í sér, að forminu til, frekar neikvæða þætti, þó svo bak við yfirborðið  væri stutt í glensið og grínið.  Nú var yfirborðinu bara sleppt og þá birtist harla skemmtilegur hópur eldri nemenda sem leiddi nýnemana niður að vatni í gær, þar sem þeir hlutu skírn, svo sem verið hefur lengur en elstu menn muna.

Það er full ástæða til að þakka stjórn Mímis og öllum eldri nemendum fyrir að taka á nýnemavikunni með svo ábyrgum hætti sem raun bar vitni.

pms

MYNDIR