vettvangsferdFöstudaginn 4. nóvember síðastliðinn fóru nemendur í fjórða bekk mála- og félagsfræðibrautar í vettvangheimsókn í Leikskólann Gullkistuna og Grunnskóla Bláskógabyggðar á Laugarvatni. Ferðin var rannsóknarverkefni í áfanganum ÍSL 633 Barnabókmenntir. 
Nemendur mynduðu tveggja manna rannsóknarhópa og hver hópur fékk eina bekkjardeild og átti að velja lesefni við hæfi. Einn hópur heimsótti hverja bekkjardeild í skólunum tveimur og las fyrir krakkana, fylgdist með undirtektum og spjallaði við þá. Einnig gerðu nemendur vettvangsathuganir hver á öðrum og vinna nú að rannsóknarskýrslu um heimsóknina og rannsóknir sínar.
Móttökurnar voru góðar, bæði af hálfu nemenda og starfsfólks skólanna. Við viljum öll þakka nemendum og starfsfólki beggja skólanna fyrir okkur.
 
Ingibjörg Jónsdóttir Kolka, íslenskukennari
Myndir í myndasafni