Menntaskólinn að Laugarvatni hefur formlega hlotið nafnbótina UNESCO skóli. Tímamótunum var fagnað í gær með því að vekja athygli á alþjóðlegum degi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi sem haldinn er árlega þann 25. nóvember. Af því tilefni blaktir appelsínugulur fáni í fánaborg skólans þó að lognið á Laugarvatni hristi fánana ekki fast þessa dagana.
ML fagnar einlæglega þessum áfanga og hyggst í samstarfi við UNESCO vekja athygli nemenda sinna á starfi Sameinuðu þjóðanna og ekki síst heimsmarkmiðum þeirra. Á meðfylgjandi myndum eru nemendur ML með skírteinið góða að fagna þessum áfanga.
Hér er hlekkur á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna Heimsmarkmið | Forsíða (heimsmarkmidin.is) og eins er hægt að kynna sér heimasíðu UNESCO skólanna hér UNESCO Associated Schools Network | UNESCO be síðan er mikill hafsjór fróðleiks af ýmsu tagi.
Jóna Katrín
![](https://ml.is/wp-content/uploads/unesco-1.png)
![](https://ml.is/wp-content/uploads/un1-1024x749.jpg)
![](https://ml.is/wp-content/uploads/un2.jpg)
![](https://ml.is/wp-content/uploads/un3-1024x768.jpg)