Í gær, fimmtudaginn 29. janúar, fóru fram kosningar til nýrrar stjórnar Mímis, nemendafélags ML. Á aðalfundi félagsins sem haldinn var um kvöldið var talið upp úr kjörkössum og úrslit urðu ljós.
Nýja stjórn Mímis skipa:
Stallari – Fannar Óli Ólafsson
Varastallari – Aðalheiður Sif Guðjónsdóttir
Gjaldkeri – Helga Dögg Ólafsdóttir
Jafnréttis- og skólaráðsfulltrúar – Arnaldur Ármann og Þórdís Ósk Þórðardóttir
Skemmtinefndarformenn – Vésteinn Loftsson og Þorsteinn Bergmann
Íþróttaformenn – Allan Hólm Rúnarsson og Baltasar Smári Stefánsson
Árshátíðarformenn – Anna Karen Bjarndal Ívarsdóttir og Guðjón Ingi Guðlaugsson
Tómstundaformaður – Stefán Gunngeir Stefánsson
Ritnefndarformaður – Metta Malín Bridde
Vef- og markaðsfulltrúi – Amelía Íris Unnarsdóttir
Menntaskólinn óskar nýkjörinni stjórn gæfu og velfarnaðar í störfum.

