Það er spennandi að búa á Laugarvatni, útivistarparadís sem er auk þess staðsett nálægt okkar þekktustu náttúruperlum og þar á meðal þjóðgarðinum á Þingvöllum. Því er kærkomið að fá tækifæri til að fara í þjóðgarðinn, skoða lífríkið og njóta náttúrufegurðarinnar og gestrisni starfsfólksins og þá sérstaklega Torfa Jónssonar fræðslufulltrúa þjóðgarðsins.

Að venju þarf að skipuleggja svona ferð með nokkrum fyrirvara og er því veðrið mikið happdrætti. Í þetta sinn náðum við dásamlegu veðri þrátt fyrir mikla rigningu daginn áður og seinnipart þennan sama dags. Torfi leiddi okkur um svæðið og sagði okkur frá sögunni, náttúrunni og ferðamanninum á lifandi og skemmtilegan hátt. Þingvallaurriðinn var skoðaður, Silfra, Öxará, Drekkingarhylur, Lögberg, Almannagjá og loks fræðslusýningin á Hakinu.

Ferðin tókst í alla staði mjög vel og þökkum við Torfa kærlega fyrir leiðsögnina og Pálma fyrir aksturinn. Það fer ekki á milli mála að Íslensk náttúra er auðlind sem okkur ber að fara vel með.

Jóna Björk og Margrét Elín kennarar Umhverfis- og vistfræðiáfanga