Laugardaginn 24. maí 2025 var skólahaldi við Menntaskólann að Laugarvatni slitið í 72. sinn. Við hátíðlega athöfn voru útskrifaðir 28 nemendur; níu af náttúruvísindabraut, þar af fjórir af heilsuræktarlínu og 19 af félags- og hugvísindabraut, þar af fjórir af listalínu. Þetta er mikill fyrirmyndarhópur sem hefur sannarlega unnið hörðum höndum og haft mikil áhrif á skólabraginn með störfum sínum fyrir nemendafélagið Mími. Jóna Katrín Onnoy Hilmarsdóttir skólameistari þakkaði hópnum sérstaklega fyrir glæsilegt framlag til skólans í ræðu sinni. Áslaug Harðardóttir áfangastjóri flutti annál skólaársins 2024-2025 og fór þar yfir viðburðaríkt ár sem einkenndist af kórsöng og gleði.
Dux nýstúdenta var Emma Ýr Friðriksdóttir frá Höfn í Hornafirði með einkunnina 9,13 og semi-dux nýstúdenta var Þórdís María Arnarsdóttir frá Reykjavík með einkunnina 8,95. Dux scholae er svo reiknaður með einum aukastaf og er þar um að ræða hæstu heildareinkunn yfir allan skólann, skólaárið 2024-2025. Þar urðu efstar þær Emma Ýr, Þórdís María og Helga Dögg Ólafsdóttir frá Hvolsvelli, nemandi í fyrsta bekk, en þær voru allar með einkunnina 9,1. Semi dux scholae var nemandi í fyrsta bekk, Evelina Dorozka frá Flúðum, með einkunnina 9,0. Glæsilegur árangur hjá þeim öllum.
Að vanda voru júbílantar, útskrifaðir nemendur frá ML, viðstaddir útskriftarathöfn og færðu skólanum góðar gjafir. Gjafir frá júbílöntum ML hafa verið mikil lyftistöng fyrir skólann og hafa nýst sem stuðningur við skapandi starf og ekki síst tónlistarstarf við skólann. ML vill koma á framfæri sérstökum þökkum til júbílanta 2025 fyrir þeirra stuðning við skólann og sérstaklega var ánægjulegt að fá að taka á móti stórum hópum 50 og 60 ára júbílanta!
Viðurkenning var veitt úr styrktarsjóði Kristins og Rannveigar, fyrrum skólameistara og eiginkonu hans. Styrkþegar voru að þessu sinni þrír; Emma Ýr Friðriksdóttir, Þórdís María Arnarsdóttir og Sjöfn Lovísa Bahner Jónsdóttir. Viðurkenningin er veitt þeim sem skarað hafa fram úr með dugnaði og lofsverðri ástundun með von um að hún verði þeim hvatning til frekara náms.
Fulltrúar nýstúdenta og 20 ára júbílanta ávörpuðu hátíðargesti og voru að þessu sinni Kolfinna Sjöfn Ómarsdóttir fyrir hönd nýstúdenta og Jóhannes Helgason fyrir hönd 20 ára júbílanta. Tveir starfsmenn skólans voru formlega kvaddir við athöfnina en það var annars vegar Gunnar Þorgeirsson sem unnið hefur ötult starf í þágu skólans undanfarin 25 ár, fyrst sem nefndarmaður og svo formaður skólanefndar ML. Hins vegar flutti skólameistari kveðju til Eyrúnar Jónasdóttur sem stýrt hefur kór ML undanfarin 15 ár með miklum glæsibrag og hefur kórstarfið sannarlega sett mikinn svip á skólastarf að Laugarvatni. Voru þau kvödd með virktum og þakklæti að skilnaðargjöf var þeim afhentur blómvöndur og silfurnæla með merki skólans.
Ef smellt er hér má líta fjölda mynda frá athöfninni. En myndatökumaður er sérlegur ljósmyndari ML, Ívar Sæland.


