Þann 23. ágúst voru 56 nýnemar skírðir í Laugarvatni og má með sanni segja að athöfnin hafi tekist vel. Hátíðleiki, gleði og kátína einkenndu athöfnina þrátt fyrir að veðrið hafi ekki leikið við okkur þennan föstudaginn.

Við í ML bjóðum nýnemana okkar innilega velkomna og hlökkum til komandi skólaárs.

Ívar Sæland tók meðfylgjandi ljósmyndir og hér má sjá enn fleiri myndir frá skírninni.