Ársskýrsla ML fyrir árið 2024 hefur verið gefin út. Þar kennir ýmissa grasa! Sem dæmi:
- Viðtöl við tvö úr starfsmannahópnum, feðginin Berglindi Pálmadóttur og Pálma Hilmarsson. Vel er hugsað um vistarbúa: “Þetta starf hefur einhvern veginn orðið að aðaláhugamálinu og má segja að hafi orðið okkar lífsstíll.”
- Umfjöllun um fræðslu og starfsþróun sem á sér stað í ML: “Kennsla og skólastarf er í eðli sínu í sífelldri þróun. Óformlegar leiðir eins og bókalestur og nærandi samtöl eru sannarlega hluti af því að þroskast í menntastarfi. Þá sækir starfsfólk hin ýmsu námskeið og ráðstefnur.”
- Yfirferð á þróun nemendafjölda og samsetningar nemendahópsins; aðsókn síðustu ár hefur verið mjög góð og kynjahalli rétt sig af: “Aðsóknin var góð bæði á félags- og hugvísindabraut (F) og á náttúruvísindabraut (N), færri komust að en vildu”
Það er fjölbreytt og öflug menntun sem nemendum býðst í Menntaskólanum að Laugarvatni. Eins og Jóna Katrín ritar í ávarpi fremst í skýrslunni;
“Í eðli sínu býður heimavistarskóli upp á meiri nánd og samveru en annars fæst þegar nemendur hverfa heim til foreldrahúsa eftir skóla. Það er þó ekki sjálfgefið að samveran náist eða að hún sé jákvæð. Að því þarf að vinna með stöðugum hætti og lykillinn að farsælli dvöl á heimavist ML byggir á góðri samvinnu nemendafélagsins Mímis, skólastjórnenda og starfsfólks heimavista.
