Skáldin í þriðja bekk létu ljós sitt skína þessa vikuna og sömdu ljóð og nýyrði. Var það gert til að heiðra Jónas Hallgrímsson og Dag íslenskrar tungu sem haldin hefur verið upp á síðan 1996. Í dag var sett upp sýning í Stofu íslenskra fræða í bókasafni Menntaskólans að Laugarvatni þar sem verkin hafa verið heng, klesst og límd á hina ýmsu fleti.

Endilega kíkjið við og skoðið það sem þau hafa hrist fram úr erminni.

Leó Ingi