Föstudaginn 26. ágúst síðastliðinn lauk nýnemaviku í ML með gleðigöngu og skírn í Laugarvatni. Að skírn lokinni eru nýnemar formlega orðnir ML-ingar og voru þeir boðnir hjartanlega velkomnir í skólann að athöfn lokinni.  

Það var sérstakt fagnaðarefni að hægt væri að virða þessa hefð með því sniði sem við áttum að venjast fyrir Covid-19 faraldurinn og óhætt að segja að gleðin hafi skinið úr hverju andliti. Veðrið lék við ML-inga þennan dag og sólin glampaði á vatninu og í augum viðstaddra.  

Myndir af glöðum ML-ingum má sjá hér.

Velkomin í ML kæru nýnemar.