Kórbúðir voru haldnar 23.-24. janúar með það í huga að þjappa kórnum betur saman. Nýr kórstjóri, Stefán Þorleifsson, nýtti einnig tækifærið til að kynnast hópnum. Að þessu sinni fóru kórbúðirnar fram í skóla, sem einfaldaði skipulagið töluvert þar sem kórinn telur 117 meðlimi.

Kóræfingar áttu upphaflega að hefjast strax eftir skóla á föstudegi. Vegna landsleiks Íslands var þó skipulaginu lítillega breytt og áhugasamir fylgdust fyrst með boltanum. Að því loknu hófust æfingar í N-stofu skólans, þar sem viðburðir eru haldnir og rými er nægilegt fyrir allan kórinn.

Eftir gómsæta hamborgaraveislu úr mötuneytinu var æft áfram fram að kvöldvöku. Þá undirbjó hver raddhópur sitt eigið atriði og áttu dómarar erfitt með að velja sigurvegara. Að lokum var það alt-röddin sem bar sigur úr býtum. Eftir kvöldvökuna var farið í feluleik um allan skólann og sá kórstjóri um leitina. Leitin tók nokkurn tíma og skemmtu sér allir afar vel.

Á laugardeginum var æft fram til kl. 15, alls konar uppbrot og í lokin allur hópur saman. Ljóst er að lög vortónleikanna verða fjölbreytt og skemmtileg og því er hægt að láta sig hlakka til þeirra! Kórinn er nú að undirbúa sig fyrir ferð til Stokkhólms sem farin verður 7. apríl, auk vortónleikanna sem haldnir verða í lok apríl.

Margrét Elín Ólafsdóttir

verkefnastjóri