Miðvikudagurinn 12. apríl, afmælisdagur ML rann upp bjartur og fagur. Eftir morgunverð var hringt til afmælishúsfundar þar sem skólameistari fór yfir dagskrá dagsins og afhenti nemendum og starfsfólki afmælisgjöf, bláan ægifínan bakpoka með merki skólans og nafni viðkomandi prentað á framhlið.

Eftir húsþing drógu nokkrir nemendur fram gítara og nemendur þöndu raddböndin á söngsal að gamalli hefð.

Hátíðardagskrá í íþróttahúsi hófst kl. 13:00. Viðstaddir voru fjölmargir gestir. Forseti Íslands heiðraði afmælisbarnið með nærveru sinni, nemendur og starfsfólk skólans fyrr og nú auk margra annara velunnara.

Dagská var svohljóðandi:

  • Skólameistari setti afmælishátíðina 
  • Forseti Íslands ávarpaði samkomuna 
  • ML kórinn söng tvö lög 
  • Gunnar Þorgeirsson, formaður skólanefndar ML, ávarpaði samkomuna 
  • Gunnar Júlíusson listamaður og ML-ingur afhjúpaði málverk af fráfarandi skólameistara, Halldóri Páli Halldórssyni 
  • Halldór Páll Halldórsson flutti stutta kveðjuræðu 
  • Skólameistari lokaði síðan athöfninni með nokkrum orðum og kór ML og allir gestir sungu saman skólasönginn. 

Eftir hátíðardagskrá var opið hús í Menntaskólanum. Boðið var upp á afmælisköku og aðrar veitingar í matsal og um allan skóla voru sýningar á ýmsu úr skólastarfinu frá fornu og nýju.

Hér eru fjölmargar myndir sem ljósmyndari skólans, Ívar Sæland tók í afmælinu

og ef smellt er hér fyrir neðan má horfa upptöku frá athöfninni og skoða skannaðar myndir frá fyrri námsárum.

Valgerður