Annarleyfi og Heimavika

Skólahald hefur gengið ljómandi í Menntaskólanum að Laugarvatni eftir að allir nemendur komu í hús. Til að koma nemendum fyrir innan sóttvarnarreglna höfum við fengið að koma hluta nemenda fyrir í Héraðsskólanum, því fagra húsi. Við í ML erum afar stolt af nemendum...

Enn var dansað

Í liðinni viku stigu nemendur 2. og 1. árs í dansspor 3ja árs nema. Völdu lag, sömdu dans við lagið, æfðu og sýndu samnemdum og kennara við mikinn fögnuð áhorfenda.  Dansarnir þeirra voru einnig virkilega flottir og dansararnir fimir og og glæsilegir! Hér eru nokkrar...

Það var dansað

Nemendur 3ja árs í áfanganum Hreyfing og heilsa fást við ýmis viðfangsefni í tímum. Í gær var verkefni þeirra að velja lag, semja dans við lagið  og æfa hann síðan.  Að lokum dönsuðu þau dansinn sinn  fyrir samnemendur  við mikinn fögnuð nemenda og kennara 🙂 Dansarnir...

Þýskir réttir í þýskuvali

Nemendum á þriðja ári hefur að vori staðið til boða að velja Berlínaráfanga eftir skylduáfanga í þýsku. Hluti af þeim áfanga er ferð til Berlínar.  Í ár var það ekki hægt og því var ákveðið að bjóða upp á kvikmynda- og menningaráfanga. Þessa vikuna í þýskuvali voru...

ML fær fimmta Grænfánann!

Þann 26. janúar fengum við í ML fimmta Grænfánann okkar við hátíðlega en fámenna athöfn fyrir utan skólann. Það var Sigurlaug Arnardóttir frá Landvernd sem færði nokkrum nemendum úr umhverfisnefndinni fánann og viðurkenningarskjal. Við erum afar stolt af...